Beint í efni

Vinnubrögð og heimildir

Þú átt að geta rakið allt.

Flott myndmál er einskis virði ef ekki er hægt að treysta því. Hér eru vinnubrögðin sem við setjum okkur.

Hreinskilni fyrst: Sjónmál er í undirbúningi og hefur ekki gefið út þátt. Það sem hér stendur eru yfirlýst markmið — ekki lýsing á ferlum sem þegar hafa verið reyndir. Við viljum að þú getir haldið okkur við þau.

  1. 01

    Spurningin fyrst, niðurstaðan síðast

    Hver þáttur byrjar á spurningu. Niðurstaðan á að ráðast af rannsókninni — ekki af því sem við héldum fyrirfram.

  2. 02

    Sérfræðingar og hagsmunaaðilar

    Við ræðum við fólkið sem þekkir málin best og þá sem eiga hagsmuna að gæta, og segjum frá því hver er hvað.

  3. 03

    Frumheimildir fyrst

    Við viljum lesa skýrsluna sjálfa, ekki bara fréttina um hana. Þar sem hægt er förum við í frumgögnin og vísum beint á þau.

  4. 04

    Heimild með hverri fullyrðingu

    Hverjum þætti á að fylgja heimildalisti með virkum tenglum hér á vefnum, svo hver sem er geti rakið það sem við segjum.

  5. 05

    Staðreynd eða sviðsmynd?

    Það sem hefur gerst og það sem gæti gerst er ekki sami hluturinn. Við ætlum að merkja skýrt hvað er mæling, hvað er spá og hvað er sviðsmynd — og gefa aldrei í skyn að sviðsmynd sé staðfest staðreynd.

  6. 06

    Óvissan fær að sjást

    Framtíðin er óviss og góð gögn segja það sjálf. Við viljum sýna óvissubil og fyrirvara í stað þess að fela þá til að sagan verði snyrtilegri.

  7. 07

    Ólík sjónarmið

    Í flestum stórum málum eru rökin fleiri en ein. Við leitumst við að sýna sterkustu útgáfuna af ólíkum sjónarmiðum, ekki bara þá sem hentar frásögninni.

  8. 08

    Grafík sem útskýrir

    Kvarðar eiga að vera heiðarlegir og myndmál má ekki ýkja. Ef mynd gefur ranga tilfinningu fyrir stærð eða hraða er hún röng, sama hversu flott hún er.

Stefna

Sjálfstæði, gagnsæi og leiðréttingar.

  • Ritstjórnarlegt sjálfstæði

    Sjónmál á að ráða sjálft hvað er fjallað um og hvernig. Þeir sem fjármagna verkefnið fá ekki stjórn á niðurstöðum umfjöllunar.

  • Gagnsæi

    Ef verkefnið fær styrki eða vinnur með öðrum á það að koma skýrt fram — bæði hér á vefnum og í viðkomandi þætti.

  • Leiðréttingar

    Við munum gera mistök. Þegar það gerist á að leiðrétta þau fljótt, merkja breytinguna með dagsetningu á síðu þáttarins og útskýra hvað var rangt.

Sástu villu?

Láttu okkur vita. Ábendingar um rangfærslur, betri heimildir eða sjónarmið sem vantar eru besta gjöfin sem miðill getur fengið.

Hafa samband

Í undirbúningi

Framtíðin er í sjónmáli.