Beint í efni

Ný íslensk YouTube-rás · Í undirbúningi

Framtíð Íslands í mynd.

Útskýringarmyndbönd um málin sem móta framtíð Íslands.

Við köfum í skýrslur, ræðum við sérfræðinga og förum á vettvang til að sýna hvað er í húfi og hvaða leiðir standa til boða.

Þekkingin er til

Sérfræðingar búa til fjölda skýrslna árlega — sem fáir lesa.

Hér eru 30 þeirra. Allar fjalla um framtíð Íslands.

Blaðsíður

2.442

af texta, í 30 skýrslum um framtíð Íslands

Það sem vantar er líf og samhengi.

Talning Sjónmáls · 30 opinberar skýrslur í PDF-útgáfu · nóv. 2026

Stefna Sjónmáls

Að breyta skýrslum í

Flest þessara mála hafa verið greind í þaula af sérfræðingum og faghópum. Niðurstöðurnar enda í töflu á blaðsíðu 58. Þar sitja þær — nema einhver sýni þær.

  1. Dæmi úr skýrslunni bls. 11

    Losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi 1990–2055 — samantekt
    Umhverfis- og orkustofnun, 2025

    Losun frá vegasamgöngum 2023: 921 þús. tonn CO₂-ígilda.

    Sama dæmi í myndmáli Kringlumýrarbraut, Reykjavík

    Deilt á daga ársins eru það 2.523 tonn. Sem gas myndi einn dagur fylla tening sem er 111 metrar á kant.

  2. Dæmi úr skýrslunni vísindagrein

    Glacier Changes in Iceland From ~1890 to 2019
    Guðfinna Aðalgeirsdóttir o.fl., Frontiers in Earth Science, 2020

    Jöklar Íslands rýrnuðu að meðaltali um 9,6 milljarða tonna á ári, 1995–2019.

    Sama dæmi í myndmáli Skeiðarárjökull

    Það eru um 1,1 milljón tonn á hverri klukkustund, af öllum jöklum landsins. Sem ís er það teningur sem er 106 metrar á kant.

  3. Dæmi úr skýrslunni bls. 58

    Húsnæðisáætlun Reykjavíkur 2025–2034
    Reykjavíkurborg, 2025

    Íbúðaþörf samkvæmt miðspá: 1.400 íbúðir á ári.

    Sama dæmi í myndmáli Gufunes, Reykjavík

    Miðað við 100 fermetra á íbúð eru það fjórtán hæðir á heilum hektara. Á hverju ári.

Svona vinnum við

Aðferðin

  1. Málefni er valið

    Eitthvað sem skiptir máli fyrir framtíð Íslands og hefur þegar verið rannsakað vel.

  2. Spyrjum algengustu spurninganna

    Þeirra sem flestir velta fyrir sér en fáir fá svör við.

    Hvað kostar að bíða?

    Hver borgar?

    Hvað er vitað — og hvað ekki?

    Hvað þýðir þetta fyrir mig?

  3. Búum til myndrænt efni úr frumheimildum

    Skýrslur, gögn og teikningar verða að kortum, grafík og þrívídd ofan á alvöru tökur.

    Teikningar af Vör verða að þrívídd ofan á drónaskot.

    Unnið fyrir Faxaflóahafnir

    Skólphreinsun útskýrð skref fyrir skref.

    Unnið fyrir VSÓ Ráðgjöf

  4. Tölum við sérfræðinga

    Fólkið sem vann rannsóknirnar útskýrir þær sjálft.

    Úr viðtalstökum.

    Úr fyrri verkefnum Ímyndar

  5. Greinum frá mismunandi hagaðilum

    Flest stór mál hafa fleiri en eina hlið. Við sýnum hverjir eiga hagsmuna að gæta og hvað þeir segja.

    Þau sem byggjaÞau sem borgaÞau sem búa við hliðinaÞau sem verndaÞau sem ákveða
  6. Hjálpum fólki að ná heildarmyndinni án þess að búa til skoðanir.

    Þú færð það sem þarf til að mynda þér þína eigin.

    Eitt skot, ein staðreynd: skemmtiferðaskipin koma um fjóra mánuði á ári.

    Unnið fyrir Faxaflóahafnir

Myndefnið er prufur og eldri verk Jóels Daða Ólafssonar, ekki útgefnir þættir Sjónmáls. Tölurnar eru úr skýrslunum sem vísað er í; útreikningar í myndunum eru okkar.

Hver stendur að baki?

„Flestir nenna ekki að lesa langar skýrslur. Mér finnst það skemmtilegt.“

Jóel Daði Ólafsson er höfundur Sjónmáls. Hann starfar við myndbandsframleiðslu undir nafninu Ímynd og hefur reynslu af því að útskýra flókin viðfangsefni með myndmáli.

Í Sjónmáli er hann forvitinn þáttastjórnandi sem leitar svara — ekki sérfræðingur í öllu sem fjallað er um.

Meira um Sjónmál

Vinnubrögð og heimildir

Betri skilningur.Betri umræða.Betri ákvarðanir.

Markmiðið er að þú getir myndað þér þína eigin upplýstu skoðun. Til þess þarf að vera hægt að treysta því sem við sýnum.

  • Frumheimildir fyrst

    Skýrslan sjálf, ekki fréttin um hana.

  • Staðreynd, spá eða skoðun

    Merkt skýrt, svo þú vitir hvað er hvað.

  • Heimildir með hverjum þætti

    Svo þú getir rakið allt sjálf(ur).

  • Mistök leiðrétt sýnilega

    Fyrir opnum tjöldum, ekki í kyrrþey.

Öll vinnubrögðin

Í undirbúningi

Framtíðin er í sjónmáli.

Heilir þættir verða á YouTube, styttri myndbönd á samfélagsmiðlum og heimildir og ítarefni hér á vefnum.